Megan Auður

Megan Auður

Megan Auður er þverfagleg listakona og aktívisti búsett á Íslandi. Verk hennar fjalla um áföll og bata, og skapa umgjarðir fyrir samtöl, stuðning og sameiginlega ímyndun um mögulegar framtíðir. Megan útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá HKU University of the Arts í Utrecht árið 2020 og hefur síðan unnið á ýmsum sviðum lista, meðal annars sem listakona, kennari, aktívisti, rithöfundur og sýningarstjóri. Í listsköpun sinni hefur hún staðið að mörgum samstarfsverkefnum – þar á meðal samstarfshópnum Tools for the Times og hagsmunasamtökunum AIVAG, Artists in Iceland Visa Action Group. Megan hefur meðal annars unnið með Kuno Biennale, Basis Voor Actuele Kunst, Kunsthalle Wien og Impakt Hátíðinni.


Sjá aðra listamenn