Hvernig önnumst við sprungurnar sem eftir standa?

Hvernig önnumst við sprungurnar sem eftir standa?

Kannski er spurningin að þessu sinni ekki hvernig eigi að gera við skemmdirnar, heldur hvernig eigi að annast sprungurnar sem eftir standa?

Verkið er framhald frá hátíðinni 2025, listakonan tekur upp þráðinn þar sem skilið var við í fyrra og bætir nú í safn keramikmuna sem fylla upp í og laga sprungur gangstéttanna í og í kringum Hamraborg. Þetta árið hefur hún fyllt í hátt í 200 sprungur. Viðgerðirnar eru áminning um að ekkert snýr aftur í upprunalegt horf, og er viðgerðin sjálf viðurkenning á sárinu sem felur þar með í sér ábyrgð á að annast þann skaða sem orðið hefur.

Verkið byggir á hugmyndafræði Kintsugi og orðum Maria Thereza Alves: „... við gætum nýtt hugmyndina um viðgerð sem eitthvað meira en tímabundna lagfæringu. Því hún viðurkennir jafnframt að ómögulegt sé nokkru sinni að snúa aftur til fyrra horfs… Heimurinn er enn brotinn. Samsett brot hans mynda eitthvað flóknara en hina glötuðu „upprunalegu“ heild… Það er engin lækning. Þess í stað viðurkennum við sárið og sættum okkur við að skurðurinn sé til staðar. Það leiðir af sé þá mikilvægu ábyrgð að annast þann skaða sem orðið hefur.“

Listamaður

Sjá aðra viðburði