
Kathy Clark
Kathy Clark er listakona og sýningarstjóri sem hefur búið og starfað í Reykjavík frá árinu 2005. Skúlptúrar hennar og innsetningar í formi blandaðra miðla spretta úr fantasíu, sagnagerð og táknfræði sem kannar þá ósýnilegu heima sem skarast við okkar innri og ytri landslög. Með íverandi og frásagnardrifnum verkum býður hún áhorfendum inn í rými þar sem minni, ímyndunarafl og lifuð reynsla renna saman.
Nýleg verk hennar kanna persónulega sögu og sögu kynslóðanna og fjalla um þær þrengingar, landflótta og mismunun sem kóresk amma hennar, móðir og hún sjálf hafa upplifað. Í gegnum þessa linsu endurskoðar Clark frásagnir fjölskyldunnar frá sjónarhorni samtímans. Þótt verk hennar takist á við flókin og oft erfið viðfangsefni tileinkar hún sér ljóðræna, vongóða og stundum leikandi nálgun sem opinberar seiglu, tengsl og umbreytingu.
Clark hefur sýnt víða á Íslandi og erlendis og þar má nefna einka-og samsýningar á stofnunum á borð við Listasafn Reykjavíkur, Hafnarborg, Gerðarsafn og á Listahátíð í Reykjavík, auk sýningarsala og menningarstaða í Kaliforníu, þar sem hún bjó áður. Verk hennar eru í einkasöfnum víðsvegar um Ísland og Bandaríkin.
Samhliða listsköpun sinni hefur Kathy sinnt störfum sýningarstjóra við Gluggagalleríið frá 2012 - 2021, gallerí sem hún stofnaði sjálf. Galleríið sýndi staðbundnar innsetningar eftir listamenn úr nærumhverfinu og umbreytti glugga sem seri út að götu í aðgengilegt sýningarrými fyrir samtímalist.



