Earthlings art guild

Earthlings art guild

Listasamsteypuna Earthlings skipa þau Dauren, Daria og Laura. Í sameiningu leggja þau áherslu á nauðsynlega samleið lista, vísinda og vitneskju frumbyggja. Í fræðilegum og listrænum verkefnum leiða þau saman þekkingu sína á listum, líffræði og vitneskju frumbyggja með það að markmiði að takast á við málefni á borð við loftslagsbreytingar, tengsl við hið meira-en-mannlega og endurheimt jarðvegs.

Oyun Daria Testo

Oyun Daria Testo er sýningarstjóri og sögusmiður af búrjat-mongólskum uppruna (Khori Buryad). Hún vinnur markvisst að því að efla sýnileika jaðarsettra sjónarmiða sem og sjónarmiða hins meira-en-mannlega heims sem hún nálgast út frá afnýlenduvæðingu. Starf hennar byggir á varðveislu áþreifanlegs og óáþreifanlegs menningararfs, þar sem hefðbundin vistfræðileg þekking (Traditional Ecological Knowledge, TEK) og þekking þeirra sem tilheyra landinu er höfð að leiðarljósi. Með því að styðjast við þekkingu forforeldra sinna, munnlega og ritaða, beinir hún athyglinni að hugmyndum um gagnkvæmni, staðbundnar heimsmyndir og heimskilning, svo sem þjóðfræðilegar hefðir og goðsagnir, auk mikilvægisins sem felst í því að mynda og rækta tengsl og skyldleika.

Laura Elidedt Rodriguez

Laura Elidedt Rodriguez (f. 1991, Michoacán, Mexíkó) er þverfagleg lista og vísindakona sem kannar skurðpunkta vistlistar, nýmiðlunar og getgátu hönnunar. Með bakgrunn í líftækniverkfræði, sameindalíffræði og list og vísindum blandar hún í verkum sínum saman vísindalegum aðferðum og listrænni rannsókn, með áherslu á samtvinnun lífs, tækni og mannkyns.

Dauren Kaliaskar

Dauren Kaliaskar er fjöllistamaður og vísindamaður af Argyn-ættbálki Kasaka. Hann á rætur að rekja til Kasakstan en stundar nú doktorsnám við Albertaháskóla í Kanada þar sem hann einbeitir sér að verndun, endurheimt og sjálfbærri nýtingu graslendis. Í vísindarannsóknum sínum leggur Dauren áherslu á að lágmarka notkun efna og úrgangs og leitast við að þróa sjálfbærar aðferðir sem hámarka nýtingu auðlinda.





Sjá aðra listamenn