Countess Malaise

Countess Malaise

Countess Malaise er íslensk myndlistar og tónlistarkona sem er þekkt fyrir rafmagnaða sviðsframkomu og orðfimi sem hrífur alla áhorfendur með sér.

Eftir að hafa sett sinn svip á neðanjarðarsenur Íslands á árunum 2019 til 2021 með sinni einstöku myrku og tælandi orku, lagði hún land undir fót. Hún sló í gegn hjá hinsegin- og neðanjarðarsenum og prýddi íkonísk svið á borð við Melkweg, Paradiso og Garage Noord (Amsterdam), Den Anden Side (Kaupmannahöfn), La Station (París), Sónar og Iceland Airwaves.

Eftir fimm ára hlé snýr hún aftur með bjartari og kraftmeiri hljóm þar sem blandast Hyper Pop, EDM og Cloud Rap – eins og heyra má í nýjustu smáskífum hennar, „All I Think About Is“, „Drop It Low“ og „Komið Gott“.

Sjá aðra listamenn