Kviss búmm bang

Kviss búmm bang

Eva Björk Kaaber, Eva Rún Snorradóttir og Vilborg Ólafsdóttir hafa skapað sín eigin framandverk sem Kviss búmm bang síðan árið 2009. Verk þeirra snúast um að rannsaka eðlileikann, hvað er eðililegt og hvað ekki, í þeirri von að fá fólk til þess að vera meðvitaðri um þeirra eigin raunveruleika. Í verkum okkar eru hvorki áhorfendur né leikendur, einungis þátttakendur. Kviss búmm bang færir leiklistina út í líf þátttakenda með því að fá þá til að skuldbinda sig til þátttöku í lengri tíma.

Verk Kviss búmm bang eru samsköpunarverk og hafa verk þeirra verið sýnd á hátíðinum og í leikhúsum víðsvegar um Evrópu, t.d. á Wiener Festwochen, Baltic Circle Helsinki, þjóðleikhúsinu í Riga og Mladi Levi í Ljubljana.


Sjá aðra listamenn