

Verkið Hvernig líður gagnkynhneigðum? er lifandi, performatísk rannsókn á líðan gagnkynhneigðra í samtímanum og niðurstöður/útkoma þess verður nýtt sem efniviður í nýjasta verk Kviss búmm bang Gagnkynhneigð - Landsátak sem sýnt verður í Þjóðleikhúsinu í apríl á næsta ári.
Tekinn verður púls á líðan hinna gagnkynhneigðu með innsetningu þar sem fólk fær tækifæri til að velta fyrir sér lífi og líðan innan hinnar gagnkynhneigðu formgerðar.
Eva Björk Kaaber, Eva Rún Snorradóttir og Vilborg Ólafsdóttir hafa skapað sín eigin framandverk sem Kviss búmm bang síðan árið 2009. Verk þeirra snúast um að rannsaka eðlileikann, hvað er eðlilegt og hvað ekki, í þeirri von að fá fólk til þess að vera meðvitaðara um eigin raunveruleika. Í verkum þeirra eru hvorki áhorfendur né leikarar, einungis þátttakendur. Kviss búmm bang færir leiklistina út í líf þátttakenda með því að fá þá til að skuldbinda sig til þátttöku í lengri tíma.
Verk Kviss búmm bang eru samsköpunarverk og hafa þau verið sýnd á hátíðinum og í leikhúsum víðsvegar um Evrópu: t.d. á Wiener Festwochen, Baltic Circle Helsinki, þjóðleikhúsinu í Riga og Mladi Levi í Ljubljana.