
Inga María Olsen & María Kristín Jóhannsdóttir
María er dansari, performer og danshöfundur búsett í Reykjavík - alin upp í Kópavogi. Hún er með BA gráðu í Samtímadansi frá Listaháskóla Íslands, þar sem hún sótti skiptinám í TEAK í Helsinki og DDSKS í Kaupmannahöfn. Hennar áhugasvið liggur á mörkum veruleika og sviðsetningar. Þegar hún er ekki að dansa er hún að DJa undir nafninu MAR!A eða að plana næsta spor.
Inga María er 26 ára dansari og performer búsett í Kópavogi. Hún er með BA gráðu í Samtímadansi frá Listaháskóla Íslands, þar sem hún sótti skiptinám í KHiO í Oslo. Eftir útskrift fór hún svo í starfsnám hjá dansflokknum í Gautaborgar Operunni þar sem þau voru að vinna að Hammer eftir Aleksander Ekman og 12 songs eftir Kenneth Kvarnström. Inga gæti hlupið heilt maraþon og farið með uppistand á sama tíma uppi á sviði. Inga elskar allt sem tengist hreyfingu og að gera eitthvað erfitt :) en húmorinn er aldrei langt undan.



