

Lokunarhóf: Step Sister og Búkalú á Catalínu! Verið velkomin á lokunarhóf Hamraborg Festival á kaffi Catalínu þann 3. September þar sem síðustu viðburðir hátíðarinnar munu fara fram! Fram koma Step Sister og Búkalú.
Fjörið hefst kl. 19:00!
20:00
Step Sister (Inga María Olsen & María Kristín Jóhannsdóttir)
Glöggt er gests augað, og steppskór eru gestir á dansgólfinu. Klisjurnar, merkingarnar og dramatíkin hlaðnar í skónum og hljóðunum sem þeir framkalla spegla dans dagsins í dag. Til að finna ræturnar þarf maður að nota fæturna. Örvæntingafullar reyna þær að endurlífga skó sem eru löngu dauðir. Catalina umbreytist í stað þar sem draumar verða að veruleika. Hefðir og nostalgía glíma við örvæntingu og glundroða samtímans - með léttleika, húmor og steppskónna að vopni.
HLÉ - ****athugið að Búkalú er sýning bönnuð innan 18 ára og hentar ekki þeim sem óttast undur mannslíkamans.
21:00
Búkalú (Broody Valentino, Gógó Starr, Margrét Maack, Nonni & Rose Noir)
Búkalú er fullorðins fjölbragðasýning sem Margrét Erla Maack heldur utan um. Sýningin aðlagar sig að stað og stemmara hverju sinni og hefur verið sýnd í gróðurhúsum, öldurhúsum, heimahúsum, úti undir berum himni - og nú er komið að Café Catalinu og þó fyrr hefði verið! Burlesque, sirkus, kabarett, drag og alls konar vitleysa. Fram koma Broody Valentino, Gógó Starr, Margrét Maack, Nonni og Rose Noir.