
Búkalú
Búkalú er fullorðins fjölbragðasýning sem Margrét Erla Maack heldur utan um. Sýningin aðlagar sig að stað og stemmara hverju sinni og hefur verið sýnd í gróðurhúsum, öldurhúsum, heimahúsum, úti undir berum himni - og nú er komið að Café Catalínu og þó fyrr hefði verið! Burlesque, sirkus, kabarett, drag og alls konar vitleysa. Sýningin er bönnuð innan 18 ára og hentar ekki þeim sem óttast undur mannslíkamans. Í sýningunni koma fram Gógó Starr, Rose Noir, Nonni og Broody Valentino frá New York. Margrét Maack, burleskmamma Íslands heldur um hnútana.
Broody Valentino er burlesquedansari frá New York. Hann er kallaður Bangsinn með klærnar og er hér á landinu til að skemmta á Bears on Ice-hátíðinni.
Gógó Starr er fyrsta íslenska fag-dragdrottningin. Gógó er einn vinsælasti skemmtikraftur landsins, hvort sem það snýr að árshátíðum, kabarettsýningum í Þjóðleikhúskjallaranum eða tottnámskeiðum í gæsapartýum.
Margrét Maack er burlesquemóðir Íslands og er sú sem kom með neoburlesque-ið hingað eftir ótrúlega röð tilviljana í New York á hennar sokkabandsárum. Margrét kemur jafnt fram á klístruðum búllusviðum sem stærstu sviðum, og sló nú síðast í gegn með burlesque-atriði í sýningunni Þetta er Laddi.
Nonni er margverðlaunaður fimleika- og kraftlyftingamaður, sem hefur verið leiðandi í sirkussenunni hérlendis um nokkurt skeið. Hann kemur fram með Sirkus Íslands, Hringleik og Kjallarakabarett.
Rose Noir flutti til Íslands fyrir nokkrum árum frá Berlín, þar sem hún starfaði sem fyrirsæta og módel. Hversdagssjálfið hennar vann nýlega tvenn Grímuverðlaun fyrir danshöfund ársins og dans- og sviðshreyfingar ársins.



