Bjørn Penk

Bjørn Penk

Bjørn Penk (NO/US) er kerfishönnuður, listamaður og fuglaskoðari búsettur í Reykjavík. Bjørn starfar á mörkum félagslegrar hönnunar og sviðslista og lýsir sjálfum sér sem póst-listrænum (e. postartistic) iðkanda og hönnunar-aktívista. Undanfarið hefur iðkun hans beinst að því að þróa nýjar leiðir til að leiða saman fugla og mannfólk.

Undanfarið hefur iðkun hans beinst að því að þróa nýjar leiðir til að leiða saman fugla og mannfólk. Þessar áherslur birtast bæði í listrænum útfærslum sem kanna þessi tengsl sem og þverfaglegum samstarfsverkefnum víða um Norðurlöndin, sem stuðla að fjölbreyttari nálgunum á sviði náttúruverndar og umhyggju sem hörfar frá tegundahyggju.

Það kemur fyrir að hann neyðist til að leggja allt frá sér og stökkva af stað til þess að eltast við sjaldgæfan fugl í von um að ná að skoða hann áður en hann flýgur á brott.


Sjá aðra listamenn