

Hvernig myndir þú lýsa tjaldri?
Hvaða fugl minnir þig á heimkynni þín?
Hefur þér einhvern tíman liðið frjálsum/ri/u eins og fugli?
Í ágúst og september ár hvert, meðan að á Hamraborg Festival stendur, halda Fossvogsleirurnar upp á eigin hátíð í hljóðum. Þúsundir farfugla koma við á svæðinu á leið sinni suður, eftir að hafa eytt sumrinu í norðri. Við munum ganga frá Gerðarsafni niður brekkuna, í gegnum mannleg og meira-en-mannleg (e. more-than-human) hverfi, í átt að sjávarmálinu. Í fjörunni setjum við svo upp sjónaukann og beinum athygli okkar að flæðarmálinu, því sem sjáum og þeim sem sjá okkur. Flóð og fjara mun ákvarða hvað er sýnilegt. Fuglarnir ákvarða rest.
___
Viðburðurinn er ókeypis og tekur um 60 mínútur. Skoðunarleiðangurinn fer fram á ensku, hentar öllum aldurshópum og gengið verður á rólegum hraða. Við komum saman við inngang Gerðarsafns kl. 13, einnig er velkomið að hitta okkur á leiðarenda: gatnamótunum milli Huldubrautar og Marbakkabrautar, ef það hentar betur. Bílastæði eru í nágrenninu. Taktu með þér hlýja yfirhöfn og kíki ef þú átt slíkan.
Í sönnum anda fuglaskoðarans fer gangan fram sama hvernig viðrar.
Skoðum fugla saman!
Spurningar? Hafðu samband: penkbjorn@gmail.com.