Alex Sumarliði

Alex Sumarliði

Alex (f. 2000) er samtímamálari og teiknari frá Reykjavík. Í málverkum sínum vinnur hann með form og fleti sem hann mótar í hversdagslega hluti á leikandi hátt. Í verkunum skoðar hann tengingu fólks við umhverfið sitt og hugmyndir þeirra um það. Hann hugleiðir þunga flata og leggur áherslu á sterka myndbyggingu sem einkennist jafnframt af jafnvægi og hnitmiðuðu flæði innan myndarinnar. Uppsetning myndar og samspil lita stýra tilfinningunni í verkum hans. Verk Alex eru oft ljóðræn en jafnframt beinskeytt.

Sjá aðra listamenn