Landslag í matinn

Landslag í matinn

Landslag í matinn eru ljóðræn abstrakt málverk sem standa á mörkum þess fígúratíva. Alex vinnur út frá náttúrunni í sínu nærumhverfi í bland við persónulegar minningar og eigið ímyndunarafl. Hann bry brytjar landslagið upp í fleti og kannar form, hreyfingu og samspil lita og byggir upp nýja mynd af landslaginu sem ber með sér tilfinningalega upplifun. Alex veltir fyrir sér hvað það er að vera til innan hugmynda sem móta umhverfið og okkur sjálf. Landslagið verður persónulegt.

Allar sýningar opna föstudaginn 28. ágúst kl. 17 og verða opnar á hefðbundnum opnunartíma sýningarstaða til 4. september.

Listamaður

Sjá aðra viðburði