
Diljá Þorvalds
Diljá Þorvalds er íslenskur listamaður sem býr og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands með myndlistargráðu 2021 og hefur síðan tekið þátt í og sett upp sýningar bæði hérlendis og erlendis. Diljá rekur ásamt hópi fólks Gallery Kannski í miðbæ Reykjavíkur. Hún vinnur helst með málverkið og textíl. Í verkunum sem sýnd verða á Hamraborg Festival höfðar hún til yngstu hátíðargestana, þó svo að fólk á öllum aldri megi að sjálfsögðu njóta þeirra líka.



