Ævintýri

Ævintýri

Ævintýri er innsetning listmuna sem dreift er um bókasafn Kópavogs og bera með sér vísbendingar þess að þar hafi ævintýralegir atburðir átt sér stað. Inngrip listamannsins draga fram súrrealíska eiginleika bókasafnsins og dregur athyglina að draumunum og sögunum sem búa innan veggja þess. Verkið býður krökkum á öllum aldri að finna barnið innra með sér og og gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn um stund.

Verkið samanstendur af töfragripum sem eru skapaðir með hefðbundum handverksaðferðum sem Diljá hreifst af í æsku: leðurvinnu, útsaumi, perlusaumi, fléttum og víravirki. Þessar fornu handverkshefðir birtast í ævintýrunum sem hún ólst upp við sem og í fjölskyldusögum sem gengið hafa milli kynslóða. Með því að skapa muni sem sameina vinnuna sem býr að baki handverkinu og goðsagnir leikur Diljá sér að hugmyndum um verðmæti og gleðst yfir mótanleika trúar og sannleiksgildis.

Munina má finna með því að fylgja fjársjóðskortunum sem fást við inngang safnsins. Fyrstu 100 börnin til þess að ljúka fjársjóðsleitinni fá verðlaun í móttökunni.



Listamaður

Sjá aðra viðburði