
Sophie Mak-Schram
Sophie Mak-Schram er listamaður sem býr í Wales og Hollandi og starfar á sviði listsköpunar, listasögulegra rannsókna og róttækrar kennslufræði. Hán vinnur með staðbundin þátttökuverk sem snúast um vald, sameiningu, þekkingu og framtíð. Í samstarfi við aðra vinnur Sophie að því að búa til verkfæri sem geta ögrað valdi, ýtt undir samvinnu og boðið upp á nýjar leiðir til að tengjast (hvert við annað, við staði, við stofnanir). Sophie byggir á persónulegri og sameiginlegri reynslu af menningarmun, nýlendustefnu, kynþætti og kyni.
Nýleg verkefni eru meðal annars To Shift a Stone (2025-26) í Þjóðminjasafni Wales og Chapter Arts Centre, Stretching Thresholds, Holding Streams (2024-2025) í samstarfi við Jeanne van Heeswijk í Migros samtímalistasafninu í Sviss og Blueprints for Studies (2024) sem sýnd var í samstarfi við Rahel Sphörer við Zeppelin-háskóla í Þýskalandi.



