Páll Óskar & Benni Hemm Hemm

Páll Óskar & Benni Hemm Hemm

Páll Óskar

Páll Óskar Hjálmtýsson (f. 1970) er sjálfmenntaður söngvari og hefur unnið sem slíkur frá barnsaldri. Hann hefur verið áberandi sem ein skærasta poppstjarna Íslands og eftir hann liggja fjölmargar upptökur á hljómplötum, sólóplötur og samstarfsverkefni með öðrum tónlistarmönnum. Páll Óskar er einn af fáum íslenskum tónlistarmönnum sem er jafnvígur á stuðtónlist og ballöður, enda er leitun að öðrum tónlistarmanni sem höfðar til jafn breiðs hóps hlustenda. Plötur hans hafa selst í bílförmum og troðfullt er á tónleika hans og dansleiki. Eldra fólk sem og börn á leikskólaaldri kunna lög hans utanbókar. Ómælt er það starf sem hann hefur sinnt í þágu réttindabaráttu samkynhneigðra, en hann hefur meðal annars setið í undirbúningsnefnd hátíðarinnar Reykjavík Pride – Hinsegin daga árum saman. Árið 2008 gaf Páll Óskar svo út safnplötuna Silfursafnið sem sömuleiðis náði metsölu og er enn að seljast. Þessa dagana vinnur Páll Óskar að sinni næstu sólóplötu, en fyrstu tvær smáskífunar, "Ást sem endist" og "Líttu upp í ljós" náðu toppi íslenskra vinsældarlista árið 2015.

Benni Hemm Hemm

Benni Hemm Hemm er listamannsnafn Benedikts H. Hermannssonar. Fyrsta útgáfa Benna Hemm Hemm var smábreiðskífan SummerPlate, sem gefin var út í 30 eintökum árið 2003. Síðan þá hefur Benni Hemm Hemm gefið út 14 breiðskífur, 4 smábreiðskífur, eina plötu með leikritatónlist og tvær ljóðabækur og flutt tónlist sína á margvíslegum vettvangi í öllum mögulegum hljómsveitarmyndum og einn síns liðs.


Sjá aðra listamenn