lúpína

lúpína

lúpína er tónlistarkona frá Íslandi og Noregi sem kom fyrst upp á sjónarsviðið haustið 2022 þegar hún gaf út sitt fyrsta lag ‘alein’. Síðan þá hefur hún heillað bæði innlendan og erlendan tónlistarheim með útgáfum á plötunum ‘ringluð’ árið 2023 og ‘MARGLYTTA’ árið 2024, jafnt sem framkomum á tónlistarhátíðum víða um heim. Þar á meðal má nefna Roskilde Festival í Danmörku, SXSW í Austin og Iceland Airwaves.

Tónlist lúpínu má lýsa sem tilraunakenndu lista poppi, með mikla áherslu á texta, raddanir og dínamískan hljóðheim. Í dag er lúpína rísandi nafn í íslensku og alþjóðlegu tónlistarsenunni.


Sjá aðra listamenn