
Sigurlinn Maríus Sigurðar
Sigurlinn Maríus Sigurðar er listamaður sem býr og starfar í Reykjavík. Hann útskrifaðist með BA gráðu í myndlist úr Listaháskóla Íslands vorið 2025. Hann vinnur þvert á miðla með áherslu á hefðbundið handverk, innsetningar, myndbönd og teikningar. Í verkum sínum fjallar hann um fáránleika, sjálfið, grín og dýrmæti. Hann hefur mikinn áhuga á fagurfræði hluta sem oft eru dæmdir ómerkilegir og ósýnilegri vinnu.



