
Limit Getaway
Cecilia Bodin er listakvár með aðsetur í Kaupmannahöfn og vinnur þverfaglega. Helstu miðlar háns eru stafrænir og blandar hán saman hreyfimyndum og myndböndum við lifandi gjörninga. Hán vinnur með menningarminjar sem virðast hlutlægar og stórbrotnar, með það að markmiði að afmá, ofvitna í og afskræma þær. Sem stendur stundar hán bakkalárnám í myndlist við HDK Valand.
Karólína Rós Ólafsdóttir er ljóðskáld sem skrifar á íslensku og ensku og starfar á mörkum skrifa, myndlistar og þýðinga. Hún er með BA-gráðu í ritlist og bókmenntum frá Goldsmiths-háskóla og MA-gráðu í ritlist frá Háskóla Íslands. Verk hennar hafa birst í tímaritum, útgáfum, gjörningum og samsýningum á Íslandi, í Þýskalandi og Bretlandi.
Stella Wells er leikkona og listakona með aðsetur í Lundúnum, Englandi og vinnur hún þverfaglega í kvikmyndum, leikhúsi og staðbundnum gjörningum. Hún heillast að verkefnum sem sameina myndlist og gjörningalist, með sérstöku dálæti á 16mm filmum. Hún lauk meistaragráðu í leiklist frá Drama Centre London, Central Saint Martins árið 2022 og BA-gráðu með láði í listasögu frá Edinborgarháskóla.



