
Kvennakórinn Blika
Kvennakórinn Blika var stofnaður í janúar 2002 og fagnar því 25 ára afmæli á næsta ári. Kórinn er að jafnaði skipaður 50 söngelskum konum á öllum aldri og hefur sungið undir stjórn núverandi kórstjóra, Margrétar Eir, frá 2019. Kórinn leggur ríka áherslu á vandaðan kórsöng og heldur tónleika bæði að hausti og vori ár hvert ásamt því að taka þátt í skemmtilegum uppákomum allt árið um kring.



