
Henrik Koppen
Henrik Koppen (1990) er norskur listamaður sem vinnur með gjörningalist, vídeó, skúlptúr og tónlist. Hann býr á bóndabæ í litlu þorpi sem heitir Velsvik, í Vestur-Noregi og hefur mikinn áhuga á að vinna með samtímalist í umhverfi landsbyggðarinnar. Henrik lauk BFA-gráðu frá Bergen Academy of Art and Design og MA-gráðu í sviðslist frá Listaháskóla Íslands. Hann tekur þátt í ýmsum samstarfsverkefnum, þar á meðal tvíeykinu Koppen & Jorkjen með gjörningalistamanninum Finn Adrian Jorkjen, og starfar jafnframt sem sýningarstjóri gjörningarlistar á Tonehimmel-hátíðinni í Noregi.



