
Alicja Kubicka
Alicja Kubicka (f. 1993 í Bydgoszcz í Póllandi) er myndlistarkona sem býr og starfar í Poznań. Hún útskrifaðist frá málaradeild Listaháskólans í Gdańsk árið 2017. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum hjá opinberum stofnunum og einkastofnunum víðs vegar um Pólland, þar á meðal Zachęta þjóðlistasafninu í Varsjá, þjóðminjasafninu í Gdańsk og BWA Wrocław samtímalistasöfnunum. Í verkum sínum vinnur hún með málverk á striga, fyrirferðarmiklar skissubækur sem erfitt er að sýna, og klaufalega skúlptúra. Hún skrifar stundum um myndlist, en aðeins þegar þess er krafist. Samhliða myndlistarstarfi sínu stundar hún og kennir jóga.



