Thomas Pausz & Miguel Angel Crozzoli

Thomas Pausz & Miguel Angel Crozzoli

Thomas Pausz (f. París, Frakklandi) er hönnuður, margmiðlalistamaður og fræðimaður búsettur í Reykjavík. Hann er nú í doktorsnámi við Intelligent Instruments Lab við Háskóla Íslands, þar sem hann vinnur að verkefni sem tengir saman listrannsóknir, tilraunakennd hugvísindi og gagnrýna tæknifræði. Pausz er með MA-gráðu frá Royal College of Art í London og BA-gráðu í heimspeki og margmiðlafræði frá Paris X University. Í þverfaglegri vinnu sinni skapar Pausz tilraunakennd margmiðla-vistkerfi sem tillögur að annarskonar lífríki og tengingu við ómanngert umhverfi. Hann hlaut Stanley Picker-styrk í list og hönnun (2023–24) og var staðarlistarmaður við Laboratoire Modulaire (ESAM Caen) árin 2021-2022. Pausz hlaut Launasjóð listamanna (2021-22) og Hönnunarverðlaun Reykjavíkur árið 2019.

Miguel Angel Crozzoli - er tónskáld, saxófónleikari og doktorsnemi í menningarfræði, sem nú vinnur að rannsóknarverkefni við Intelligent Instruments Lab í Reykjavík. Miguel nam evrópskar tónsmíðar, djassfræði og menningarstjórnun í Argentínu og er með framhaldsnám og meistaragráðu frá Rytmíska Tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn, þar sem hann stundaði hagnýtar rannsóknir á fagurfræðilegum möguleikum hljóðgervinga. Hann trúir á kraft hljóðs sem umbreytandi upplifun fyrir samfélög og hefur sérstakan áhuga á lýðræðisvæðingu gagna og miðlun þekkingar. Í gegnum rannsóknaráhuga á tónlist, nýrri tækni, gögnum og gervigreind kannar hann spurningar um hlutverk listar í gagnrýninni hugsun og skynjun.

Sjá aðra listamenn