
Silfrún Una Guðlaugsdóttir
Silfrún Una Guðlaugsdóttir lauk BA-prófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2020. Listsköpun Silfrúnar má lýsa sem leit að einlægni og berskjöldun í gegnum eftirlíkingu, látbragð og leik, sem birtist oft í hljóðlist, gjörningum og innsetningum. Í verkum sínum rannsakar hún minni, húmor og tengsl, og nýtir mannsröddina til að kanna hvernig við tengjumst umhverfi okkar. Samstarf er lykilþáttur í starfi hennar, sérstaklega í tvíeykinu Tara og Silla sem hún stofnaði ásamt Töru Njálu Ingvarsdóttur árið 2017. Saman vinna þær þvert á miðla og verk þeirra birtast einkum sem vídeóverk, gjörningar og innsetningar sem snerta á fögnun, vináttu og samskiptum. Mottó-ið þeirra er: „Playful not hostile”. Þær hafa haldið þrjár einkasýningar, í Kling og Bang árið 2024, á Kleifum 2023 og í Myndhöggvaragarði Reykjavíkur 2021. Í þeirra verkum rannsaka þær saman vináttu og hátíðleika.
Silfrún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum, bæði sem hluti af Tara og Silla og með eigin verkum, á Íslandi og erlendis. Núna í vor tók hún þátt í ACT-gjörningahátíðinni í Zürich. Á síðustu árum hefur hún tekið þátt í listamannavinnustofum víða á Norðurlöndunum og árið 2025 lauk hún námi við Lunga Radio School á Seyðisfirði.
Um þessar mundir stundar hún meistaranám við Art Gender Nature Institute við Listaháskólann í Basel.



