Riccardo Vailati & Ívar Ölmu

Riccardo Vailati & Ívar Ölmu

Riccardo Vailati er sjálfstæður sýningarstjóri, rithöfundur og myndlistarmaður búsettur í Reykjavík. Hann starfar víðsvegar um Ísland, Holland og Ítalíu. Í verkum sínum kannar hann ólík tilfinningalandslög í tengslum við tilteknar landfræðilegar staðsetningar og rannsakar tilvist tákna sem vekja upp persónulegar minningar og áföll. Verk hans sækja innblástur í tilvistarspeki og Bít-kynslóðina og leitast við að byggja upp ósvikin tengsl sem skapa nýjan skilning og merkingu. Með þessari nálgun hvetur hann til þess að goðsagnir séu afhelgaðar og fyrirfram gefnar hugmyndir afbyggðar.

Hann er meðlimur í sýningarstjórnarteymi RÝMD, listrýmis í Breiðholti, og einn af meðlimum listamannarekna rýmisins Á milli.


Verk Ívars – hann vinnur með mismunandi miðla og blandar oft vídeóverkum, gjörningalist og skúlptúr í verkum sínum. Þó útkoman sé fjölbreytt innihalda verkin oftast einhverskonar skúlptúr, oft abstrakt og hreyfanlega hluti úr fundnu efni: við, járni og endurnýttum raftækjum og mótorum. Sköpunarferli Ívars einkennist af forvitni og leik. Verk hans kanna innbyggða eiginleika efniviðarins, setja þá í nýtt samhengi og kannar mörkin. Þessar tilraunir með efniviðinn leiða að áreynslulausum og náttúrulegum listaverkum sem oft sýna undirliggjandi eðli neysluhyggjunnar á húmorískan sem og alvarlegan máta.


Sjá aðra listamenn