Hekla Kollmar

Hekla Kollmar

Hekla Kollmar (2002) er myndlistarkona starfandi í Reykjavík sem vinnur fyrst og fremst í skúlptúr og innsetningar. Ferli hennar einkennist af vökulu auga á hversdagslegar aðstæður, líkamstjáningu þeirra, efnisheim og skírskotanir. Hún rannsakar samtöl og tilveru hluta samhliða tilhneigingu mannsins til að sortera umhverfi sitt. Verk hennar vega salt á milli skynjunar á merkingar, einlæg og absúrd í senn. Hekla útskrifaðist með BA gráðu í Myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2024 og stundar nú meistaranám í Ritlist við Háskóla Íslands. Verk hennar hafa verið sýnd á einka- og samsýningum víða um Ísland og í Berlín.

Sjá aðra listamenn