
Gréta Jónsdóttir & Heiðrún Sæmundsdóttir
Gréta Jónsdóttir (1998) er íslensk myndlistarkona sem útskrifaðist með BA í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2020. Hún lauk viðbótardiplómu í kynfræði (e. sexology) frá Háskóla Íslands árið 2023. Gréta vinnur með fjölbreytta miðla, meðal annars ljósmyndun, gjörninga, textaverk og skúlptúr. Í verkum sínum fjallar hún um samskipti, minningar, tilfinningar, líkamsímynd og tengsl. Viðfangsefni verkanna snúa oft að sjálfsskoðun og úrvinnslu viðhorfa og hugmynda, gjarnan í tengslum við áhorfendur, þar sem mörk hins persónulega og sameiginlega fá að mætast. Upp á síðkastið hefur Gréta unnið með blóm sem viðfang, þar sem þau birtast bæði vegna fagurfræðilegra eiginleika en tákna einnig minningar, viðkvæmni, styrk og tengingar.
Heiðrún Sæmundsdóttir (1994) er íslensk myndlistarkona, búsett í Reykjavík. Hún útskrifaðist með BA í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2021. Hún vinnur á mörkum myndlistar og handverks, þar sem hún nýtir textíl og persónulega reynslu í verkin sín. Heiðrún vinnur með fjölbreyttan efnivið, blandar saman óhefðbundnum efnivið og gömlum handverksaðferðum svo sem prjóni, hekli, útsaumi og vefnaði. Þannig skapar hún verk sem fjalla um persónuleg málefni sem tengjast sterkt inn í femíníska hugmyndafræði.
Gréta og Heiðrún útskrifuðust með meistarapróf í listkennslufræðum frá Listaháskóla Íslands 2026, þar sem þær kynnast. Þetta er fyrsti gjörningurinn þeirra saman, en þær hafa áður unnið sem teymi að öðrum verkefnum.



