Má bjóða þér sykur?

Má bjóða þér sykur?

Gjörningurinn Má bjóða þér sykur? tvinnar saman íslenska pönnuköku hefð og “kvennaverk”. Pönnukökurnar eru nýttar sem efniviður í hinar ýmsu athafnir: þurrka af og skúra, brjóta saman, stoppa í göt eða slaka á með andlitsmaska.

Örþunnt hringlaga form, ilmur fyllir rýmið, hendur hreyfast í endurtekningu.

Mæla, hræra, hella.

Mjúk og þunn blanda, ausið yfir funheitt yfirborð þakið smjöri. Gyllist hægt og rólega og ber með sér þennan undurfagra ilm sem vekur upp tilfinningar og minningar um venjur, um góðar stundir. Athöfnin lifir í líkamanum.

Mæla, hræra, hella, baka, snúa.

Í endurtekningunni verður til ákveðin kyrrð, samtal milli handahreyfinga. Athöfnin er ákveðið mynstur, brothætt og tímabundið, en sameinar fólk í gegnum bragð, hlýju og sameiginlega reynslu.

Mæla, hræra, hella, snúa, bera fram.

Má kannski bjóða þér sykur?

Leifar gjörningsins munu mynda innsetningu sem verður til sýnis í Gerðarsafni 29.ágúst til 4.september.

Sýningin verður opin á hefðbundum opnunartíma safnsins.

Sjá aðra viðburði