
Furðuskrímsli
Skapandi furðuskrímsli er smiðja fyrir börn þar sem ímyndunaraflið fær að ráða ferðinni. Börnin fá að búa til sín eigin furðuskrímsli úr alls konar efnivið, til dæmis endurunnum hlutum, náttúruefnum, pappír, málningu og öðru skemmtilegu sem hægt er að klippa, líma, mála og púsla saman.
Verkefnið sækir innblástur í leik, furðuheim skrímsla og þá hugsun að það skrýtna og öðruvísi geti líka verið gott. Það getur verið fallegt, fyndið, skapandi og skipt máli. Markmiðið er að skapa notalegt og hvetjandi rými þar sem börn geta skapað á sínum eigin forsendum, átt góða samverustund með fullorðnum og haft gaman í leiðinni.
Guðlaug Þórlindsdóttir og Sonja Ólafsdóttir eru iðjuþjálfar sem sameina fagþekkingu, leikgleði og skapandi hugsun í vinnu með börnum. Þær hafa báðar víðtæka reynslu af starfi með börnum og fjölskyldum þeirra og leggja áherslu á styrkleika, þátttöku, sjálfsmynd og lausnamiðaða nálgun. Í starfi sínu nýta þær leik, myndir, sögur og sköpun til að breyta krefjandi verkefnum í skemmtilega og hvetjandi upplifun. Markmiðið er að börnin efli sjálfsþekkingu, finni eigin styrkleika og uppgötvi leiðir sem virka í daglegu lífi.
Guðlaug lauk BS-prófi í iðjuþjálfunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2020 og starfar á Gló Æfingastöð. Þar sinnir hún einstaklings- og hópþjálfun, fræðslu og ráðgjöf til foreldra, kennara og fagfólks. Hún hefur einnig haldið erindi um skynjun, skynúrvinnslu og áhrif hennar á líðan, virkni og þátttöku barna.
Sonja lauk BS-prófi í iðjuþjálfunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2017. Hún hefur starfað með börnum allan sinn feril, meðal annars á Barna- og unglingageðdeild og Æfingastöðinni. Í dag starfar hún sem fagstjóri listakjarna á leikskólanum Sjálandi, þar sem hún vinnur markvisst með sköpun, hugmyndaflug og tjáningu barna.
Saman hafa Guðlaug og Sonja skapað Furðuskrímsli, litríkan heim skrímsla sem hjálpa börnum með ADHD að skilja stýrifærni, styrkleika og áskoranir á einfaldan og myndrænan hátt. Furðuskrímsli eru einnig hluti af námskeiðinu Ofurhugar, þar sem börnin læra að ADHD þýðir ekki að þau séu „erfið“ - heldur að þau séu með öflugan heila sem þarf réttu verkfærin.



