

Bróderað bergmál (Embroidered Echoes) er ný útfærsla á áframhaldandi femínísku verkefni Lindy Lin, Mirror Stage (Spegilsvið). Bróderað bergmál sameinar tónsmíðar, tískuhönnun , gagnvirkar textílinnsetningar og Perfect Score - spunaaðferð sem Lindy hefur unnið að því að þróa.
Lindy er fædd og uppalin innan um hinn nostalgíska hljóðheim og landslag Quanzhou borgar í Minnan héraði. Lindy notar handsmíðaða NanYin xiao-flautu (smíðað af afa hennar), gítar og hversdagslega hluti sem oft eru álitnir kvenlegir - þar á meðal saumavélar, hárspennur, kamba og heklunálar. Í gjörningnum nálgast Lindy útsauminn sem tónsmíðaaðferð frekar en handverksaðferð. Í útsaumi fléttast saman raddir, minningar, látbragð og tímaskeið sem eiga rætur að rekja til víðtæks skilnings á kvenleika og kvenlegs eðlis.