Samtengingar

Samtengingar

Verkið er stór og óþarflega flókin uppsetning. Aðalefniviður þess eru hlutir sem gegna þeim eina tilgangi að tengja aðra hluti saman. Þótt oft sé litið fram hjá þeim eru þeir engu að síður nauðsynlegir: verkfæri, festingar, klemmur, bensli og seglar. Festingadeildin í byggingavöruverslunum býður upp á óendanlega möguleika. Kerfi, strúktúr og lagnir sem byrja, flækjast og enda. Hlutirnir eru eins og ókunnugir að haldast í hendur. Saman mynda þeir heild, samlífi, hvísluleik, net, færiband, setningu: á sama hátt og samtengingar gera okkur kleift að mynda óþarflega langar setningar, í þeirri von að koma í veg fyrir misskilning. Sigurlinn leitast við að draga fram fegurðina sem felst í þessum hlutum, færir þeim nýtt hlutverk þar sem notagildi og framköst víkja. Leyfir þeim að hvíla sig.

Sjá aðra viðburði