
Hryggur
Hryggur (hán/háns) stendur ekki kyrrt og það gerir hljómur háns heldur ekki. Hryggur er óstöðvandi afl, búsett á milli Reykjavíkur og Glasgow, mótað af ævilöngum hverfulleika milli borga, landa og menningarheima, með dassi af íslenskum áhrifum. Tónlist háns er alþjóðleg, eirðarlaus og óbundin tónlistarstefnum. Hryggur hefur vakið eftirtekt hjá hinsegin kóllektívum víða um heim, frá Sleik á Íslandi til Riposte í London og MÖTH í Hong Kong, með samruna sínum á afbyggðri klúbbatónlist, metal, breakcore, dubstep og ofurpoppi í orkumiklum settum.



