
Arnar Birgisson & nemendur leikskólans Efstahjalla
Arnar Birgisson (f. 1988) hefur lagt stund á málverk síðan 2013 en hann útskrifaðist með BA-gráðu í myndlist úr Listaháskóla Íslands árið 2024. Arnar hefur unnið bæði hér á landi og í Den Haag í Hollandi og endurspeglar myndlist hans kraft íslenskrar náttúru í bland við fígúratív verk gömlu hollensku meistaranna. Frá árinu 2023 hefur Arnar stundað kennslu í leikskóla og dregur hann innblástur úr skissuvinnu barnanna sem hefur síðan áhrif á verk hans og hugmyndavinnu.



