

Verkið sprettur af hugmyndum um staðarsorg (solastalgia) og fortíðarþrá og beinir sjónum okkar að því sem við sjáum ekki lengur – villt lífríkið sem hverfur smám saman, þjóðsögur og augnablikin sem mótuðu barnæsku okkar. Sunniva Allanic, sem er fædd á Írlandi, en nú búsett í Reykjavík, kannar djúpstæða þrá eftir villtu dýralífi og náttúru fyrri heimkynna sinna og umbreytir tilfinningunni fyrir fjarveru í áþreifanlega nærveru.
Í stað þess að líta á dýr sem einangraðar verur leitast verkið við að ögra ríkjandi hugmyndum mannsins um stigveldi innan náttúrunnar sem aðskilur eina lífveru frá annarri. Tilvist þessara vera, sem einfaldlega eru, gefur okkur innsýn í aðrar leiðir til að vera til og býður okkur um leið, á mildan hátt, að ígrunda eigið samband við hinn lifandi heim sem umlykur okkur.
Allar sýningar opna föstudaginn 28. ágúst kl. 17 og verða opnar á almennum opnunartíma sýningarstaða til 4. september.