Frumkosmótísk skrif (þátttöku gjörningur)

Frumkosmótísk skrif (þátttöku gjörningur)

Verkið byggir á handritum og táknum frá fornum og nýlegum menningarheimum og kannar leiðir til að tjá persónulegar tilfinningar sem eiga sér enga beina þýðingu á þeim tungumálum sem við þekkjum. Með því að velja myndtákn úr dulrænum ritum skapa þátttakendur eigin skilaboð eða framburð. Listamenn D.N.A. Collective munu túlka samsetningarnar og síðan býðst þátttakendum að deila fyrirhugaðri merkingu sinni. Saman kanna listamenn og þátttakendur upprunalega merkingu myndletursins og íhuga hvort ákveðnar hugmyndir, tákn eða tjáningarform tengist þvert á menningarheima og tímabil.

14:00 - 17:00 August 29

13:00 - 15:00 August 30

Huldustofa, Bókasafn Kópavogs


Listamaður

Sjá aðra viðburði