

Kvoxar eru kynjaverur sem halda til í holtinu við Kópavogskirkju. Til eru ýmsar flokkusögur, sérstaklega hjá frumbyggjum bæjarins, um tilurð þeirra og uppátæki. Ekki er auðvelt að sjá Kvoxana berum augum, verður fólk frekar vart við nærveru þeirra, sérstaklega í ljósaskiptum eða við viss birtuskilyrði . Þeir sækja oft æti í sjó og eru glysgjarnir eins og krumminn. Þeir eru einstaklega hrifnar af öllu sem hefur upphaf og endi, eins og t.d. spottum og snærium en eiga það til að flækjast og festast. Það þykir vita á gott verði maður var við Kvoxa (í híbýlum eða görðum) sér í lagi snúi maður til norðurs. Í seinni tíð hafa verunar sótt mjög í Sundlaug Kópavogs og hafa oft verið til ama. Þeim geta verið þjófóttir og strýðnir, sérstaklega við utanaðkomandi einstaklinga (úr öðrum bæjarfélögum). Fólk hefur til þessa verðir ófúst við að láta bendla sig Kvoxana, sagt er að það kunni ekki góðri lukku að stýra að tala opinberlega um tilvist þeirra og strákapör. Til eru dæmi þess að einstaklingar hafi lent í óútskýrðum óhöppum af ýmsum toga hafi þeir kvartað eða látið í ljós andstyggð sína á Kvoxum. En þeir þykja happafegnur þeim sem þeir tengjast og treysta.
Allar sýningar opna föstudaginn 28. ágúst kl. 17 og verða opnar á hefðbundnum opnunartíma sýningarstaða til 4. september.