Tónleikar í Salnum: lúpína & petals

Tónleikar í Salnum: lúpína & petals

Hamraborg Festival býður ykkur hjartanlega velkomin á tónleika í Salnum 1. September kl. 20:00 þar sem tónlistarkonurnar lúpína og petals koma fram. Báðar bjóða þær upp á innilega, og nána einleikstónleika þar sem tónlistin og tjáningin er í algleymi.

Öll eru velkomin og aðangur er frír.

lúpína

lúpína lúppar er ný tónleikasería hjá tónlistarkonunni lúpínu. Tónleikarnir eru tilraun til lifandi tónlistarsköpunnar með takmörkuðum tólum. Allir tónleikarnir eru fluttir af einni manneskju; þ.e. lúpínu, hennar rödd, einum synta og einu píanói. Þessi hljóð eru svo keyrð í gegnum tölvuforrit sem lúpína hefur forritað í takt við lögin, svo að tölvan viti hvenær hún á að taka upp ákveðin hljóðfæri, hvenær á að spila upptökuna og hvenær á að slökkva á henni. Öll hljóðin sem heyrast á tónleikunum eru flutt í lifandi flutningi á sviðinu og býr það til skemmtilega lifandi tónleikaupplifun sem er bæði nýstárleg og frumleg.

Petals

petals heldur innilega einleikstónleika á píanó sem standa yfir í um 45 mínútur eða lengur, fluttir á Bösendorfer-konsertflygilinn í Salnum. Á tónleikunum mun petals spinna og semja tónlist á staðnum. petals segir að markmið tónleikanna sé að skapa íhugular og tilfinningaríkar hljóðmyndir sem og seiðandi augnablik sem eru jafnframt svo ljóðræn að þau minna á skæran hljóm bjallna og fagran söng.


Listamenn

Sjá aðra viðburði