

Verið velkomin á stórtónleika á Catalinu 29. ágúst!
Einn af hápunktum hátíðarinnar ár hvert eru tónleikarnir á Café Catalinu og í ár er engin undantekning: ískalt rapp, trylltur taktur og stjörnusprengirokk frá Countess Malaise, Juno Paul og Kóka Kóla Polar Bear. Dj Tapaj heldur svo stuðinu gangandi fram á rauða nótt!
Húsið opnar kl. 20:00, frítt inn!
Sjáumst á dansgólfinu!!!
Kóka Kóla Polar Bear
Kóka Kóla Polar Bear er ískaldur ísbjörn sem skapar raftónlist. Einnig er hann
sannur MC. Ísbjörnin flytur grallararapp yfir raftónlistartakta. Ískaldi raftónlistarrapparinn er snúinn aftur eftir langan vetrardvala. Þeir sem heimsækja hellinn mega búast við grípandi danstöktum, fersku rímnaflæði og alvöru MC orku.
Juno Paul
Juno Paul er alter ego/hljómsveit frá Reykjavík sem hefur vakið athygli í grasrótarsenu Íslands undanfarin ár. Tónlistin er kölluð „Galaxy Exploding Rock Music“ og blandar saman gítarriffum, trommum og 8-bita tölvuleikjahljóðum. Útkoman eru orkumikil og aðeins chaotic lög með einlægum textum.
Countess Malaise
Countess Malaise er íslensk myndlistar og tónlistarkona sem er þekkt fyrir rafmagnaða sviðsframkomu og orðfimi sem hrífur alla áhorfendur með. Eftir fimm ára hlé snýr hún aftur með bjartari og kraftmeiri hljóm sem blandast Hyper Pop, EDM og Cloud Rap – eins og heyra má í nýjustu smáskífum hennar, „All I Think About Is“, „Drop It Low“ og „Komið Gott“.
Dj Tapaj
Dj Tapaj (Ernst Lyndor) er fjölhæfur og ört vaxandi kraftur í íslensku næturlífi. Hann er þekktur fyrir orkumikil sett, sem bjóða upp á blöndu af afrobeat, karabískri og latneskri tónlist, tech-house, melódísku teknói og afrohouse.