Soil Chromatography smiðja

Soil Chromatography smiðja

Soil Chromatography smiðja með Earthlings er þátttökusmiðja sem sameinar list, vistfræði og vísindi með aðferðum svokallaðrar jarðvegslitskiljunar. Þessi greiningaraðferð var þróuð á 20. öld og er enn notuð af bændum um allan heim, enda dæmi um aðgengileg vísindi og vist-táknfræði jarðvegs. Sjónræn framsetning á uppbyggingu jarðvegsins getur gefið hugmyndir um heilbrigði hans og eðli og gerir okkur þannig kleift að kynnast umhverfi okkar á dýpri hátt. Þátttakendur munu gera tilraunir með jarðvegslitskiljun úr jarðvegssýnum allstaðar að úr Hamraborg.

Myndirnar sem verða til við jarðvegslitskiljunina afhjúpa faldar steinefnasamsetningar og lífræn snefilefni í jarðveginum og skapa flókin, nánast geimkennd mynstur. Hver litskiljunarmynd verður bæði vísindalegt fingrafar og abstract verk, einskonar andlitsmynd af staðnum. Í gegnum leiddar umræður velta þátttakendur fyrir sér hvað leynist undir yfirborði borga, hvernig landið geymir minningar, sögu og vistfræðileg tengsl.



Sjá aðra viðburði