

Michael er áfrámhaldandi ljósmyndasería eftir dönsku myndlistarkonuna og sýningarstjórann Emilie Dalum sem hófst árið 2012 þegar fyrsta ljósmyndin var tekin á Íslandi. Á rúmum áratug hefur verkið þróast í umfangsmikið og persónulegt samstarf sem byggir á vináttu.
Ljósmyndirnar eru annars vegar heimild um líf Michaels Richardt, bæði sem gjörningalistamanns og einkalíf hanns. Litríkar ljósmyndirnar, sem breiða úr sér um veggi og teygja sig upp í loft, mynda saman kort af síbreytilegu sambandi tveggja vina og listamanna. Skrásetning á samband þess sem stendur fyrir framan myndavélina og þess sem stendur á bak við hana.
Verkið býður áhorfendum að velta fyrir sér hvernig náin vinátta og samsköpun getur þróast samhliða. Um leið vekur það spurningar það hvað portret mynd er fær um að geyma, hvort hægt sé að fanga líf í lósmyndum og að hvaða marki við getum raunverulega nálgast og séð aðra manneskju, jafnvel þegar djúp og persónuleg tengsl eru til staðar.
Allar sýningar opna föstudaginn 28. ágúst kl. 17 og verða opnar á hefðbundnum opnunartíma sýningarstaða til 4. september.