

8. Tilraun
Gjörningar Henriks Koppen taka oft á sig mynd ljóðrænna athafna þar sem hann sameinar þætti úr trúarbrögðum, goðafræði, sögu, hinsegin menningu og vísindum. Í listsköpun sinni leitast hann við að rannsaka samband okkar við umhverfið og efnisheiminn, um leið og hann dregur í efa þær frásagnir og venjur sem móta veruleika okkar.
„Tilraunir“ er röð gjörninga sem hóf göngu sína árið 2020 sem sjálfkrafa viðbrögð við fáránleikanum og þeim skyndilegu breytingum á veruleikanum sem urðu á fyrstu vikum kórónuveirufaraldursins. Á einni nóttu þurftum við að breyta lífsháttum okkar og aðlagast nýrri upplifun af líkamanum og samskiptum okkar við umheiminn. Þrátt fyrir að þetta hafi verið ógnvekjandi tími mátti finna að hann opnaði fyrir hina ýmsu möguleika . Er breyting möguleg? Geta manneskjur raunverulega breyst ef þær vilja það? Í þessum gjörningum birtist listamaðurinn sem eins konar gullgerðarmaður sem, með sameiginlegum athöfnum og umbreytingum efnis, reynir að kalla fram þessa tilfinningu fyrir mættinum sem felst í möguleikunum. Gullgerðarmaðurinn vinnur á mörkum vísinda og töfra og býður áhorfendum inn í tilraunastöð mögulegra framtíða. Hér opnast rými þar möguleiki gefst til að endurskoða sameiginlegan veruleika okkar, ögra hugsunarhætti sem miðast að tvíhyggju og kanna það sem leynist á gráu svæðunum.