Um okkur

Þar sem list er allstaðar og öll eru velkomin!

Hamraborg Festival er lífleg hátíð og vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs. Í lok ágúst ár hvert kveðjum við sumarið með stútfullri dagskrá af sýningum, gjörningum, vinnusmiðjum og ýmsum viðburðum. Aðgangur er ávallt ókeypis og öll velkomin.

Hátíðin stendur yfir dagana 28. ágúst - 4. september 2026 og dreifist um menningarhús, búðarglugga, kaffihús, skrifstofur og almenningsrými Hamraborgar. Listin flæðir inn í og sprettur úr hverju horni hverfisins sem býður gestum og íbúum að kanna og njóta ólíkra listforma. Hátíðin er sköpuð í nánu samstarfi við nærsamfélagið og mörg verkanna eru í samtali við arkítektúr, sögu eða daglegt líf svæðisins.

Hátíðin er ástarbréf til Hamraborgar - til íbúanna, arkítektúrsins, fortíðarinnar, framtíðarinnar og andans.

Opið kall er haldið árlega í ársbyrjun, þar sem skapandi aðilar úr ýmsum áttum senda inn tillögur og hugmyndir. Frá upphafi hefur hátíðin opnað dyr sínar fyrir breiðum áhorfendahópi og sýnt verk frá listamönnum á öllum aldri, af fjölbreyttum bakgrunni og með ólíka reynslu, hvort sem það eru listamenn frá Kópavogi, öðrum landshlutum eða erlendis frá. Við trúum á list sem sameinar fólk úr öllum áttum og eru viðburðir fyrir börn og fjölskyldur mikilvægur hluti verkefnisins, auk þess að lögð er áhersla á því að sýna verk eftir jaðarsetta listamenn.

Fyrsta hátíðin var haldin 2021 og voru stofnendur hennar Ragnheiður Bjarnason, Snæbjörn Brynjarsson, Jo Pawlowska og Sveinn Snær Kristjánsson. Hamraborg Festival óx úr listamannarekna rýminu Midpunkt, sem var rekið af sömu aðilum frá 2018 til 2021.

Aðstandendur hátíðarinnar 2026 eru Agnes Ársælsdóttir, Jo Pawlowska, Pétur Eggertsson, Ásgerður Arnarsdóttir og Erla Sverrisdóttir listamenn og sýningastjórar, Agnar Freyr Stefánsson, grafískur hönnuður og Alex Diljár Birkisbur Hellsing, listamaður og vefhönnuður.

Síðan ársbyrjun 2025 hefur Hamarborg Festival staðið fyrir reglulegum gjörningakvöldum í samstarfi við Gerðarsafn þar sem listamenn úr ýmsum áttum flytja gjörninga, bæði ný og eldri verk.

Hamraborg Festival er í nánu samstarfi við menningarstofnanir, félög og í nágrenni Hamraborgar og nýtur stuðnings frá Kópavogsbæ, en bæjarfélagið gerði þriggja ára samning við hátíðina 2026-28.

ÁFRAM HAMRABORG!

Hamraborg Festival er listamanna rekin og samanstendur af teyminu:

Agnes Ársælsdóttir (sýningastjóri), Jo Pawlowska (samstofnandi og sýningastjóri), Pétur Eggertsson (sýningastjóri and tónlistarverkefni) Ásgerður Arnarsdóttir (sýningastjóri) og Erla Sverrisdóttir (sýningastjóri)

Grafísk hönnun eftir Agnar Freyr Stefánsson, og vefsíða + framleiðslu aðstoð eftir Alex Hellsing.

Hafa samband: hamraborgfestival@gmail.com