

Pláneta býður börnum á sporbaug um veröld sína fulla af skynjunarleik! Í leikstundinni förum við í ferðalag fullt af mismunandi áferðum, efnivið og skynupplifunum. Skynjunarleiksmiðjur Plánetu eru til þess fallnar að allir fái að kynnast nýjum skynjunarupplifunum á skemmtilegan og gagnvirkan máta.
Leiksmiðjan hentar sérstaklega vel fyrir ung börn (en eldri systkini eru hjartanlega velkomin með), ásamt foreldrum, öfum og ömmum eða öðrum umönnunaraðilum. Við leggjum áherslu á að skapa notalegt umhverfi þar sem börn geta uppgötvað heiminn í gegnum skynörvun á sínum eigin hraða.