Opnar vinnustofur

Opnar vinnustofur

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á opnar vinnustofur SÍM að Digranesvegi 5 í Kópavogi, sunnudaginn 30. ágúst frá kl. 13-17 í tengslum við Hamraborg Festival.

Gestum gefst tækifæri til að heimsækja vinnustofur okkar, hitta listamennina og fá innsýn í fjölbreytt verk, hugmyndir og vinnuferli sem eiga sér stað á bak við tjöldin sem og kynnast því skapandi samfélagi sem er starfandi í húsinu.

Komið við, skoðið, spjallið og njótið listarinnar með okkur.

Listamaður

Sjá aðra viðburði