Heima

Heima

Tereza hugleiðir það hvernig hlutlausu rými er breytt í heimili og veltir fyrir sér upplifuninni að yfirgefa staði sem hafa mótað okkur jafn mikið og við þá. Verk hennar fjalla um það að vera til staðar í uppgangi og niðurrifi hvers annars, að sækjast eftir nánd í uppröðun stóla við borð og um þau líkamlegu spor sem ærslaleikir barna skilja eftir sig. Hún einblínir á eins konar gagnkvæma endurmótun, gildismissi hluta sem áður voru mikilvægir og valkvæðnina sem verður til vegna tilfinningalegra tengsla.


Allar sýningar opna föstudaginn 28. ágúst kl. 17 og verða opnar á hefðbundnum opnunartíma sýningarstaða til 4. september.

Sjá aðra viðburði