

Ekphrasis er ritlist innblásin af myndlist sem á rætur sínar að rekja til Grikklands til forna. Hún er tilraun til að fanga sjónræna upplifun og tilfinningar og umbreyta þeim í texta. Rithöfundar frá Reykjavík Poetics munu leiða klukkustundar langa smiðju í Gerðarsafni sem er opin rithöfundum jafnt sem einstaklingum sem ekki skrifa. Þar munum við kanna þetta skapandi verkfæri og semja ljóð eða prósa innblásna af listaverkunum í kringum okkur.
Þátttakendum býðst að vafra um sýningarsali safnsins, en um þessar mundir tekur sýning Jeremy Deller, Landlæg hamingja, yfir tvo stærstu sýningarsali safnsins. Á neðri hæðinni má jafnframt finna sýningarröðina Lúppa og yfirlitssýningu á verkum Gerðar.