Where are the cows?

Where are the cows?

Verkið sprettur af hugmyndum um staðarsorg (solastalgia) og fortíðarþrá og beinir sjónum okkar að því sem við sjáum ekki lengur - vilt lífríkið sem smám saman hverfur, þjóðsögur og augnablikin sem mótuðu barnæsku okkar. Sunniva Allanic sem er fædd á Írlandi, nú búsett í Reykjavík kannar djúpstæða þrá eftir villtu dýralífi og náttúru fyrri heimkynna sinna og umbreytir þessari tilfinningu um fjarveru í áþreifanlega nærveru.

í stað þess að líta á dýr sem einangraðar verur, leitast verkið við að ögra ríkjandi hugmyndum mannsins um stigveldi innan náttúrunnar sem aðskilur eina lífveru frá annarri. Tilvist þessara vera, sem einfaldlega eru, gefa innsýn í aðrar leiðir til að vera til og bjóða okkur um leið, á mildan hátt, að ígrunda eigið samband við hinn lifandi heim sem umlykur okkur.

Allar sýningar opna föstudaginn 28. ágúst kl. 17 og verða opnar á hefðbundnum opnunartíma sýningarstaða til 4. september.



Listamaður

Sjá aðra viðburði