Stutt Stopp

Stutt Stopp

Hekla Kollmar sýnir í fjökskrúðugu umhverfi Euromarket. Verkin verður að finna innan um vörurnar, þar sem þau ýmist tilheyra eða skapa mótvægi við landslagi markaðarins. Hekla rýnir í efnisheima og táknkerfi hversdagsins og fæðast verkin á samskeytum upphafningar og gagnrýni, fegurðarskyns og misskilnings. Á sýningunni er athyglinni beint að flæði sjónrænna upplýsinga sem við mætum í daglegu lífi en vissu hámarki er náð í umhverfi á borð við Euromarket. Verkin stíla inn á ofgnóttina af nákvæmni. Týndum hanska er vandlega pakkað inn, kveikjari á stefnumót við landslagsmynd á meðan kapalbindið skorðar teikninguna við hirslu. Hér má ætla að skúlptúr verði tekinn í misgripum fyrir söluvarning eða söluvarningur í misgripum fyrir skúlptúr.


Listamaður

Sjá aðra viðburði